Ársreikningur banner image
Ársreikningur banner image

Ársreikningur

Ársreikningur

Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi á matvörumarkaði, eldsneytis- og þjónustustöðvamarkaði og raf- og snjalltækjamarkaði. Rekstur fasteigna, kaup og sala verðbréfa er einnig hluti af rekstri samstæðunnar.

Móðurfélagið Festi („félagið“) á dótturfélögin Krónuna sem rekur matvöruverslanir undir merkjum Krónunnar, N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og ýmsa þjónustu tengda smur- og bifreiðaþjónustu, ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Festi fasteignir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar og Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu.

Stjórn og stjórnarhættir

Stjórn Festi hefur sett sér starfsreglur og er þar leitast við að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef www.leidbeiningar.is.

Í stjórn félagsins eru þrír karlar og tvær konur. Stjórn félagsins samdi um starfslok við forstjóra félagsins, Eggert Þór Kristófersson sem lauk störfum í lok júlí 2022. Samið var við Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóra fjármálasviðs að gegna tímabundið starfi forstjóra. Nýr forstjóri, Ásta S. Fjeldsted tók til starfa í byrjun september 2022. Hún fór í fæðingarorlof frá byrjun nóvember en mun snúa aftur til starfa í lok mars 2023. Magnús Kr. Ingason gegnir starfi forstjóra þennan tíma.

Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í viðaukanum Stjórnarháttayfirlýsing sem fylgir ársreikningnum.

Rekstur ársins 2022

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu 2022 námu 123.785 millj. kr. (2021: 101.052 millj. kr.) og hækkuðu um 22,5% milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og matsbreytingar á árinu 2022 nam 10.020 millj. kr. (2021: 10.118 millj. kr.) og lækkaði um 1,0% milli ára. Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam hagnaður ársins 4.082 millj. kr. (2021: 4.972 millj. kr.) og heildarafkoma ársins 4.044 millj. kr. (2021: 6.557 millj. kr.). Eigið fé samstæðunnar í árslok var 34.460 millj. kr. (2021: 33.910 millj. kr.) að meðtöldu hlutafé að nafnverði 308 millj. kr. Vísað er til eiginfjáryfirlits um breytingar á eiginfjárreikningum á árinu. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í árslok var 36,9% (2021: 39,4%).

Félagið gaf út afkomuspá 9. febrúar 2022 fyrir árið 2022 í tengslum við birtingu ársuppgjörs 2021, þar sem EBITDA afkoman var áætluð 9.000 – 9.400 millj. kr. Félagið hækkaði afkomuspá sína þrisvar á árinu, síðast í tengslum við birtingu uppgjörs þriðja ársfjórðungs í 10.000 til 10.400 millj. kr. EBITDA niðurstaða ársins nam 10.020 millj. kr. sem er umtalsvert betri en fyrsta afkomuspá ársins gerði ráð fyrir. Aukin umsvif hjá öllum dótturfélögum Festi skýra betri EBITDA afkomu en einnig náðist hagræðing á ýmsum sviðum sem skilaði sér í lækkun einingakostnaðar. Þá var ekki gert ráð fyrir í upphaflegri spá, 464 millj. kr. hagnaði af olíu og gengisvörnum sem og endurgreiðslu oftekinna gjalda frá ríkinu, sjá skýr. 32, samtals að fjárhæð 432 millj. kr. sem færð eru í ársreikninginn. Á móti var ekki reiknað með áhrifum afturvirkra launahækkana að fjárhæð 200 millj. kr. þegar síðasta afkomuspá ársins var gefin út.

Árið litaðist af mikilli hækkun heimsmarkaðsverða á hrávörum sem leiddi til aukinnar veltu og lækkunar á framlegðarstigi, sérstaklega í eldsneytishluta starfseminnar. Þá jókst verðbólga mikið á alþjóðamörkuðum á árinu sem leiddi til hækkandi vöruverðs. Búist er við að verð haldist áfram hátt á hrávörumörkuðum á meðan stríð geysar í Úkraníu ásamt mögulegum hnökrum í mikilvægum aðfangakeðjum. Stöðugildi umreiknuð í heilsársstörf voru 1.269 og kynjahlutfall starfsmanna (karlar/konur) var 60/40. Festi er með sterka fjárhagsstöðu og er félagið vel í stakk búið að takast á við verkefnin framundan.

Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 3 kr. arður á hvern hlut nafnverðs á árinu 2023 eða um 923 millj. kr.

Banner image
Banner image

Hluthafar

Hluthafar félagsins í lok ársins voru 1.268 en þeir voru 1.037 í upphafi ársins og fjölgaði því um 231 á árinu.

20 stærstu hluthafar í árslok 2022Hlutafé í þús. krónaHlutafé í %Breyting frá 2021 í %

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, A- og B-deild

42.055

13,7%

-1,0%

Lífeyrissjóður verzlunarmanna

33.280

10,8%

0,2%

Gildi - lífeyrissjóður

29.640

9,6%

-0,2%

Brú Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga

27.004

8,8%

2,3%

Birta lífeyrissjóður

21.826

7,1%

1,2%

Almenni lífeyrissjóðurinn

14.404

4,7%

-0,1%

Stapi lífeyrissjóður

14.217

4,6%

-0,1%

Festa - lífeyrissjóður

12.592

4,1%

1,5%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

11.279

3,7%

0,1%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

9.263

3,0%

0,1%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

7.346

2,4%

0,6%

Lífsverk lífeyrissjóður

7.119

2,3%

-0,2%

Vanguard

6.752

2,2%

2,2%

Stormtré ehf.

6.101

2,0%

0,1%

Kjálkanes ehf.

6.000

2,0%

0,4%

Sjávarsýn ehf.

5.503

1,8%

0,1%

Brekka Retail ehf.

5.000

1,6%

0,0%

Íslandssjóðir

4.924

1,6%

-0,6%

Landsbréf

3.327

1,1%

-1,3%

Sjóvá-Almennar tryggingar hf.

2.909

0,9%

-0,4%

270.541

88,0%

4,8%

Aðrir hluthafar

36.959

12,0%

-4,8%

307.500

100%

Skráð hlutafé félagsins nam 313 millj. kr. í lok ársins og var lækkað um 11 millj. kr. á árinu með jöfnun eigin hluta. Útistandandi í árslok 2022 voru 308 millj. kr. (2021: 316 millj. kr.) og átti félagið 5.000 þús. hluti í árslok. Hlutaféð er allt í einum flokki og njóta allir hlutir sömu réttinda. Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 22. mars 2022 var samþykkt að heimila félaginu endurkaup á allt að 10% af nafnverði útistandi hlutafjár sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Félagið keypti alls 8.618 þús. hluti á árinu, um 2,7% af heildarhlutfé sem lið í arðgreiðslustefnu félagsins, sjá skýr. 23. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 23. mars 2021 (sbr. skýr. 23). Óskað verður eftir framlengingu heimildarinnar á aðalfundi félagsins í mars næstkomandi.

Þeir sem hyggjast gefa kost á sér í stjórn félagsins þurfa að tilkynna það skriflega til stjórnarinnar að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Samþykktum félagsins má einungis breyta með samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða á löglegum hluthafafundi, enda sé þess rækilega getið í fundarboði að slík breyting sé fyrirhuguð og í hverju hún felst.

Ófjárhagsleg upplýsingagjöf

Festi hf. er eining tengd almannahagsmunum. Samkvæmt lögum um ársreikninga skal félagið veita upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, samfélags- og starfsmannamál, stefnu þess í mannréttindamálum, hvernig það spornar við spillingar- og mútumálum auk stuttrar lýsingar á viðskiptalíkani félagsins og fleira. Til að gera grein fyrir stöðu samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækisins hefur undanfarin ár verið gefin út skýrsla um ófjárhagslega mælikvarða í samræmi við UFS viðmið Nasdaq. Útgáfa hennar er meðal annars til að Festi geti gert grein fyrir stöðu þessara mála hjá samstæðunni samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði. Gerð er grein fyrir stefnu og árangri félagsins í þessum málum í viðauka um ófjárhagslega upplýsingagjöf með ársreikningnum.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samstæðuársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga þar sem við á.

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2022, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2022 og breytingu á handbæru fé á árinu 2022.

Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra gefi glögga mynd af þróun og árangri í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem hún býr við.

Stjórn og forstjóri Festi hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja samstæðuársreikninginn.

Kópavogi, 8. febrúar 2023.

Stjórn Festi hf.

Guðjón Karl Reynisson, Stjórnarformaður

Sigurlína Ingvarsdóttir, Varaformaður stjórnar

Hjörleifur Pálsson

Magnús Júlíusson

Margrét Guðmundsdóttir

Forstjóri

Magnús Kr. Ingason

Sækja ársreikning í pdf formati